Aðrar útgáfur af skjalinu:
PDF
Word Perfect.
Þingskjal 1274, 145. löggjafarþing 639. mál: raforkulög (tenging minni virkjana við dreifikerfi raforku).
Lög nr. 39 24. maí 2016.
Afhendi virkjun með uppsett afl 100 kW eða minna raforku á lágspennu inn á dreifikerfi skal dreifiveita veita afslátt af úttektargjaldi til eigenda hennar ef notkunarstaður tengist virkjun um lágspennu. Afsláttur skal að lágmarki nema 50% en allt að 100% af gjaldinu og skal hann nánar útfærður í gjaldskrá vegna þeirrar notkunar sem samsvarar vinnslu virkjunar á hverjum tíma. Afsláttur af úttektargjaldi á eingöngu við þegar eignarhlutur hvers eiganda er að lágmarki 33% í viðkomandi virkjun og/eða hinni virkjuðu auðlind.
Þingskjal 1274, 145. löggjafarþing 639. mál: raforkulög (tenging minni virkjana við dreifikerfi raforku).
Lög nr. 39 24. maí 2016.
Lög um breytingu á raforkulögum, nr. 65/2003, með síðari breytingum (tenging minni virkjana við dreifikerfi raforku).
1. gr.
Á eftir 2. málsl. 1. mgr. 4. gr. laganna kemur nýr málsliður, svohljóðandi: Vegna raforkuvera með uppsettu afli 100 kW eða minna þarf þó ekki virkjunarleyfi.2. gr.
Við 17. gr. a laganna bætist ný málsgrein, svohljóðandi:Afhendi virkjun með uppsett afl 100 kW eða minna raforku á lágspennu inn á dreifikerfi skal dreifiveita veita afslátt af úttektargjaldi til eigenda hennar ef notkunarstaður tengist virkjun um lágspennu. Afsláttur skal að lágmarki nema 50% en allt að 100% af gjaldinu og skal hann nánar útfærður í gjaldskrá vegna þeirrar notkunar sem samsvarar vinnslu virkjunar á hverjum tíma. Afsláttur af úttektargjaldi á eingöngu við þegar eignarhlutur hvers eiganda er að lágmarki 33% í viðkomandi virkjun og/eða hinni virkjuðu auðlind.
3. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.Samþykkt á Alþingi 12. maí 2016.